Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)

Lengd ferðar

7 nætur

Sætafjöldi

30

Flugfélag

Icelandair

Gönguferð

Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)

19. - 26. nóvember 2024

Fjölbreytt og heilsueflandi dagskrá, alhliða hreyfing í styrk og úthaldi með Hinriki Páls, kraflyftingarþjálfara og hinum glaðværa fararstjóra Ingu Geirs.

Hinrik heldur vandað námskeið um næringu og býður upp á styrktaræfingar. Að auki er hægt að bóka tíma í frekari ráðgjöf og/eða einkaþjálfun. Inga sér síðan um skemmtilegar gönguferðir fyrir hópinn í nágrenni Los Cristianos og í Canadas þjóðgarðinum.  

Ferðin er fyrir fólk 35+, sem vilja fræðast betur um hvernig hægt er að nota næringu til að ná betri árangri, eru virk í hreyfingu eða vilja efla heilsusamlegan lífstíl.


Herbergi

Verð fyrir tvo með flugi

Almennt verð £3,600.00
Almennt verð Sölu verð £3,600.00
Innáborgun: £600.00


Flug

Þú hefur valið að taka þátt í hópbókun. Innifalið í flugi er ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg. Vinsamlegast athugið að hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Ekki er hægt að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun.

Almennt verð £3,600.00
Almennt verð Sölu verð £3,600.00
Innáborgun: £600.00


Farþegi 1
Farþegi 2
Almennt verð £3,600.00
Almennt verð Sölu verð £3,600.00
Innáborgun: £600.00
Herbergi
Flug

How often?

Subscribe to get regular deliveries of this product

Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)
Heilsuvika á Tenerife (19. nóv)

Ferðaáætlun

Styrkur, næring, sól & útivera í Los Cristianos

Flug FI580 með Icelandair kl. 08:40 og lent á Tenerife kl. 14:05. Fararstjórar taka á móti hópnum á Tenerife flugvelli og ekið er á Arona Gran Hotel í Los Cristianos.

Los Cristianos er í ca. 3 km göngufæri við Amrísku ströndina og er bærinn afar sjarmerandi með litlum þröngum götum, flottum kaffihúsum, börum og úrvali verslana.

Kl. 17:00 er boðið upp á stutta göngu um svæðið og síðan er kynningarfundur á barnum og sameiginlegur kvöldverður.

5 tímar & 25 mín
15 mín

Næringarfyrirlestur frá 09:00- 10:00.

Kl. 10:45 er gengið að HAMMER líkamræktarstöðinni og þar verður Hinrik með styrktaræfingar.

Kl. 15:00 býður Inga upp á létta göngu á Amerísku ströndina. Þau sem vilja geta gengið til baka með Ingu, en aðrir geta verið áfram á Playa de Las Americas. Svæðið hefur að geyma hinn svokallaða “Laugaveg” og þar er frábært úrval verslana og veitingastaða.

Eftir það er frjáls tími það sem eftir er dags.

Kl. 09:00 er lagt af stað frá hóteli að Montaña Guaza og gengið upp á fjallið. Meðal erfið ganga og ekkert príl. Frábært útsýni hvert sem litið er og á góðum degi sést yfir til eyjanna Gran Canary og La Gomera.

Frjáls eftirmiðdagur.

9 km
hækkun/ lækkun 400 m

Næringarfyrirlestur frá 09:00- 10:00.

Kl. 11:00 er boðið upp á styrktaræfingar í HAMMER.

Frjáls tími það sem eftir er dags - upplagt í útiveru, sól, göngutúr, spa eða nudd, eða bóka einkatíma varðandi frekari ráðgjöf, þjálfun, prógram og mælinar.

Rúta frá hóteli upp í Las Canadas þjóðgarðinn.

Gönguleiðin byrjar í 2112 m hæð og mikilvægt er að hafa með sér hlýjan fatnað þar sem getur verið vindasamt við fjallið.

Gengið er á sandstígum milli fagurlega lagaðra keltta í miðjum þjóðgarðinum. Þægilegir stígar og hraðgengin leið.

Við munum enda gönguna við Parador þar sem við getum sest niður og fengið okkur hressingu áður en ekið er aftur heim á hótel.

2 tímar alls
7 km

Frjáls dagur – njótið dagsins!

Tilvalið að kíkja á sunnudagsmarkaðinn sem er til hliðar við hótelið, fara í siglingu eða slappa af.

Einnig verður í boði að bóka einkatíma hjá Hinrik varðandi frekari ráðgjöf, þjálfun, prógram og mælinar.

Næringarfyrirlestur frá 09:00- 10:00.

Kl. 11:00 er boðið upp á styrktaræfingar með Hinrik í HAMMER.

Kl. 15:00 býður Inga upp á létta göngu. Gengið frá hóteli í ca. 2 km að Montaña Chayofita. Það er ca. 1 km að ganga þar upp og niður og síðan er fólki frjálst að ganga heim á hótel með fararstjóra eða vera eftir og kíkja t.d. í Pargue Santiago 6 verslunarmiðstöðinaa sem er rétt hjá. Þar er m.a. að finna Intersport verslun.

Kl. 19:00 hittist hópurinn á barnum og síðan er sameiginlegur kvöldverður á hóteli.

5 km
60 m

Ekið frá hóteli á flugvöll. Flug FI581 með Icelandair kl. 15:05 og lent kl. 20:35.

15 mín
5 & ½ tími

Hvað er innifalið

  • Áætlunarflug með Icelandair KEF-TFS
  • Áætunarflug með Icelandair LFS-KEF
  • Ein taska hámark 23kg & 10kg handfarangur
  • Flugvallarskattar
  • Gisting með morgunverði í 7 nætur
  • 7 kvöldverðir á hóteli
  • Allar rútur samkvæmt dagskrá
  • Fræðslustundir í sal á hóteli
  • Styrktarþjálfun í 3 daga
  • Íslensk fararstjórn allan tíman
  • Skattar & tryggingagjöld í UK

Ekki innifalið

  • Einkaþjálfun/ ráðgjöf (valfrjálst)
  • Vikupassi í Hammer €45 (valfrjálst)
  • Hádegisverðir
  • Drykkir með mat
  • Ferðatryggingar
  • Þjórfé fyrir rútubílstjóra í dagsferð
Fararstjóri

Inga Geirsdóttir

Inga er frá Eskifirði, bjó í Reykjavík um árabil en flutti til Skotlands árið 2003. Þar hóf hún fljótlega að bjóða vinkonum sínum í göngur um skosku Hálöndin. Það vatt hratt upp á sig og í dag leiðir hún ásamt fjölskyldu sinni hópferðir vítt og breitt um Bretland, Írland, Austurríki, Slóveníu, Króatíu, Ítalíu og Spán. Inga er mikill húmoristi og þykir ekkert skemmtilegra en að vera með hópunum sínum.

Fararstjóri

Hinrik Pálsson

Hinrik er kraftlyftingaþjálfari og næringarþjálfari. Hann hefur á undanförnum árum unnið með íþróttamönnum í ýmsum íþróttagreinum við að bæta næringu til að hámarka árangur og endurheimt.

Einnig hefur hann verið þjálfari í mörgum landsliðsverkefnum hjá Kraftlyftingasambandinu. Hann er sjálfur keppandi í kraftlyftingum í öldungaflokki, en hefur mikla ánægju af fjölbreyttri hreyfingu og útivist.

Nánari upplýsingar hér - hinrikp.is

Algengar spurningar

Á Tenerife er hitastigið nokkuð jafnt allt árið. Í nóvember er meðalhitinn á suðurhluta Tenerife um 23°C.

Spring Arona Gran & up! er staðsett á rólegum stað í Los Cristianos. Hótelið er við strandlengjuna og er með frábært útsýni út á haf.

Spring Arona Gran er fjögurra stjörnu hótel fyrir 18+ og er sérstaklega heillandi og fallegt, blómum prýtt með mörgum huggulegum svæðum til samveru.

Herbergin eru snyrtileg með baðherbergi, sjónvarpi, síma, hárblásara, ísskápi, öryggishólfi (gegn gjaldi), loftkælingu og svölum. Öllum herbergjum fylgja náttsloppar, inniskór og sundlaugarhandklæði.

Á hótelinu eru tvær upphitaðar sundlaugar með sólbaðsaðstöðu og sundlaugarbar, heilsulind þar sem hægt er að kaupa allskyns meðferðir og nudd, þá er einnig að finna líkamsrækt þar sem m.a. er hægt að bóka sig í jóga og fleira.

Hótelið býður upp á hálft fæði (morgun- og kvöldverð) sem er innifalið í verði. Boðið er upp á flott hlaðborð þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Ókeypis wifi er á öllu hótelinu fyrir gesti. Skemmtidagskrá er á kvöldin.

Við getum kannað hvort hægt er að breyta tvíbýli í þríbýli.

Eins er hægt að senda beiðni um sjálvarsýn gegn aukagjaldi.

Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.

Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.

Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.

Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.

Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.

Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.

Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.

Allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug þurfa að fara í gegnum Skotgöngu, þar sem um hópbókun er að ræða.

Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu.

Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.