Ferðaáætlun
Einstök dömuferð til Englands og inn í sagnaheim Jane
Flug FI450 til London Heathrow. Brottför 07:40, lending 11:55. Kristín Linda flýgur með hópnum út og Inga tekur á móti hópnum á London Heathrow. Ekið er á Holiday Inn Winchester þar sem gist er fyrstu 4 næturnar.
Eftir komu á hótel verður boðið upp á léttar veitingar í sal á hóteli. Þar mun Kristín Linda vera með kynningu og spjall um ævi Jane Austen.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.
Um morguninn er samvera og fræðsla á hótelinu þar sem rætt verður um skáldsögur Jane Austen. Bækur hennar eru nú rösklega 200 ára og enn víðlesnar og hafa þrjár þeirra verið þýddar á íslensku, síðast Aðgát og örlyndi sem er kom út 2022.
Eftir það ökum við að Winchester Cathedral. Við skoðum dómkirkjuna, en undir gólfi kirkjunnar hvílir Jane Austen. Í kirkjunni má einnig finna fallegan minningarskjöld um Jane. Eftir heimsóknina göngum við saman að húsinu sem Jane Austen bjó í síðustu mánuði ævi sinnar. Síðan er frjáls tími í Winchester.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.
Ekið frá hóteli að hinum mikilfenglega Highclare Castle sögusvið Downtown Abbey og hann skoðaður.
Eftir það er ekið til Steventon, þar sem Jane Austen fæddist. Við förum að St. Nicholas kirkjunni þar sem Georg Austen faðir Jane var prestur þegar hún var að alast upp og skoðum okkur um þar.
Þegar komið er á hótel verður vinnustofa í sal á hótelinu. Farið verður nákvæmlega í gegnum hvernig er snjallt að stofna skemmtilega og gefandi bókaklúbba sem geta orðið dýrmætur vinkvennahópur þegar árin líða.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.
Ekið til Alton þar sem verður frjáls tími til að fara í hádegisverð og skoða sig um í bænum.
Síðan er ekið að Jane Austen House í Chawton þar sem Jane bjó í 8 ár og þar skrifaði hún og lét gefa út allar sex skáldsögur sínar. Nú er glæsilegt safn um hana í þessu húsi sem fyrrum var heimili hennar og mikil upplifun að skoða sig um þar.
Ekið aftur heim á hótel og þar verður samvera og vinnustofa þar sem boðið verður upp á stofnun bókaklúbba undir handleiðslu Kristínar Lindu fyrir allar þær sem þess óska og klúbbarnir leiddir af stað.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.
Tékkað út af hóteli og ekið til Stonehenge. Frjáls tími til að skoða sig um steinahringinn.
Eftir það er ekið til Lacock, sem er m.a. þekktur fyrir að vera tökustaður fyrir Downtown Abbey og Pride & Prejudice (Hroki og hleypidómar). Frjáls tími til að rölta þar um.
Síðan er ekið til Bath en þar verður gist á APEX Hotel Bath síðustu 3 næturnar.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.
Söguganga um Bath þar sem Jane bjó á árunum 1801-1806. Bath er á heimsminjaskrá UNESCO frá 1987 og hlaut aðra skráningu fyrir sín fjölmörgu og einstöku böð árið 2021. Bath er því einstök borg að heimsækja nú á tímum sem fyrr. Bath kemur fyrir í öllum skáldsögum Jane enda var hún á hennar tíma ein vinsælasta borg landsins með sínum samkomusölum og dansleikjum.
Heimsókn í Jane Austen Centre endurspeglar þann tíma og tíðaranda sem Jane lifði og bækur hennar spönnuðu
Seinna um daginn verður farið í Afternoon Tea.
Frjáls dagur í Bath. Tilvalið að heimsækja The Roman Baths sem er einn af vinsælustu viðkomustöðum á svæðinu.
Sameiginlegur kvöldverður á hóteli.
Rúta frá hóteli á London Heathrow. Flug FI451 kl. 13:50 og lent kl. 15:15.
Hvað er innifalið
- Áætlunarflug með Icelandair KEF-LHR
- Áætunarflug með Icelandair LHR-KEF
- Ein taska max 23 kg & 10 kg handfarangur
- Flugvallarskattar
- Gisting í 7 nætur með morgunverði
- 6 kvöldverðir
- Léttar veitingar á komudegi
- Allur akstur skv. dagskrá
- Aðgangseyrir í Winchester Cathedral
- Aðgangseyrir í Highclare Castle
- Aðgangseyrir í St. Nicolas Church
- Aðgangseyri í Jane Austen House
- Aðgangseyrir í Stonehenge
- Aðganseyri í Jane Austen Centre
- Söguganga um Bath
- Afternoon Tea
- Fundarherbergi & fræðsla
- Íslensk fararstjórn
- Skattar & lögboðin tryggingagjöld í UK
Ekki innifalið
- Ferðatryggingar
- 1 kvöldverður
- Hádegisverðir
- Drykkir með mat
- Þjórfé fyrir rútubílstjóra
Inga Geirsdóttir
Kristín Linda Jónsdóttir
Algengar spurningar
Þó að við getum aldrei treyst á veðrið, er maí talinn vera frábær tími til að heimsækja Bath og Winchester, með meðalhita um 7-16°.
Við göngum ekki mikið og erum yfirleitt á mjög greiðfæru undirlagi en áreynslan er meiri af því að sitja í rútunni og mikilvægt að geta hreyft ökklana. Þá er gott að vera á lágum gönguskóm/íþróttaskóm sem lofta. Sterklegir gönguskór eru því óþarfi, frekar léttir og lágir skór, sem hrinda eitthvað frá sér bleytu.
Því miður er ekki hægt að fá þriggjamanna herbergi í þessari ferð en hægt að biðja um herbergi hlið við hlið.
Vegna BREXIT eru reikisamningar ekki lengur í gildi milli Íslands og Bretlands og nauðsynlegt að útvega sér Ferðapakka Vodafone, Símans eða samsvarandi þjónustu hjá viðeigandi símafyrirtækjum fyrir brottför ef nota á netið í símanum utan hótela. Það má gera með símtali eða í gegnum netspjall við símafyrirtæki sitt.
Skotganga (Scot Walks Ltd) er ferðaþjónustufyrirtæki í Skotlandi, UK.
Ef einhver kemst ekki í þá ferð sem viðkomandi hefur bókað í, er ekki hægt að fá endurgreiðslu á innáborgun né færa innáborgun yfir á aðra ferð. Við mælum með því að fólk skoði forfallatryggingar sem tengjast kredikortum sínum eða skaffi sér sérstaka ferðatryggingu.
Það er því miður ekki lengur möguleiki að nota vildarpunkta og gjafabréf í hópbókun með Icelandair. Þeir sem vilja nota vildarpunkta geta valið að kaupa sitt flug sjálfir á heimasíðu Icelandair.
Þátttaka í hópbókun krefst að minnsta kosti 10 farþega. Ef lámarksþáttaka næst ekki, gilda reglur og skilyrði hópsins ekki lengur.
Farangursheimild, ein taska sem vegur 23 kg og handfarangur 10 kg er innifalin.
Hópurinn þarf að hefja ferð saman en farþegar geta breytt heimför gegn breytingargjaldi. Breyting verður að gerast áður en flugmiði er gefinn út.
Ef þátttakandi bókar ferðina með röngu nafni, getur Icelandair krafist nafnabreytingar gegn ákveðnu gjaldi.
Allar breytingar og aðrar fyrirspurnir varðandi flug þurfa að fara í gegnum Skotgöngu, þar sem um hópbókun er að ræða.
Hægt er að kaupa flugið út í hópbókun en ekki er hægt að kaupa flug fyrir heimferð eingöngu. Hægt er að tala við ferðaskrifstofuna (Skotgöngu) með breytingu á heimferð frá öðru landi í þeim tilfellum sem fólk er að ferðast annað eftir ferðina.
Lokagreiðsla á ferð er 10 vikum fyrir brottför. Þátttakendur munu fá tilkynningu þegar kemur að lokagreiðslu.